Já ég var nú búin að skrifa alveg helling af fréttum hingað inn
í gær og svo hvarf þetta allt saman
Allavega nú er komin nýr
dagur og ég byrja upp á nýtt.
Eins og flestir kannski vita þá erum við fjölskyldan flutt í
Hafnarfjörðin og það er alveg æði, þetta er alveg geðveik íbúð allt
innifalið sko, þvottahús, baðkar, stór stofa, sér sjónvarpshol, 3
svefnherbergi, 2 stórar geymslur, svalir, er á 1 hæð, get the point
right! Svo verðið þið barasta að koma og kíkja á höllina okkar.
Hann Magnús bróðir minn var að endurnýja allt í stofunni sinni og
við keyptum allt úr stofunni hans inn til okkar, sófaborð,
stofuskáp, senk, borðstofuborð, og 32" widescreen sjónvarp þannig
að það er eiginlega allt fullkomið sko! Ég er alveg súper ánægð
allavega.
Svo er mín komin með vinnu hérna í Hafnarfirði, já loksins. Ég
byrja á föstudaginn hjá Íslandspósti verð bara að afgreiða á
póstuhúsinu verð bara svona "Elsa" (þið úr Hveró vitið hvað ég
meina vona ég!) Svo er ég að spá í að fara bara í eithvað sniðugt
fjarnám, sá eitt sniðugt hjá Verslunarskóla Íslands á eftir að
tjékka aðeins á þessu.
7 maí síðast liðinn fórum ég og Ingvar Már í Kringluna! Tantara
já Ingvar fór með mér í Kringluna en það er samt ekki alveg það
merkilegasta við nebblega fórum í Skartgripaverslunina Jens og
versluðum okkur trúlofunar hringa, svo fórum við heim smurðum okkur
nesti tókum nýju pic-nic töskuna okkar með og keyrðum upp í
Heiðmörk, fundum okkur litla laut með sætum bekk, borðuðum nestið
okkar og settum svo upp hringana með littlu dúlluna okkar hlaupandi
í kringum okkur. Þetta var alveg æði, fullkomið veður og
staður.
Fleira er ekki í fréttum að þessu sinni, fréttir verða sagðar
næst þegar ég blogga bara!
See ya 
Guðný very very happy