Já það var einhver sem commentaði hjá mér að það væri voða langt
síðan að ég bloggaði??? Veit ekki hvað þú ert að tala um ásta mín!
En svona mér til varnar þá skrifa ég stundum inn á hottís
síðuna.
Allavega þá er bara allt gott að frétta af okkur í Hafnarfirði.
Við fórum í Húsdýragarðinn í gær og vorum þar í alveg 3 tíma, mjög
gaman, svo fórum við heim og fengum okkur kaffi og með því, svo næs
að slappa af heima hjá sér. Okkur líður annars bara vel í nýju
íbúðinni og mér líður vel í nýju vinnunni og Júlía er alveg að fíla
nýja leikskólann sinn! Svo fyrir ykkur sem ekki vita er litla
stelpan mín orðin 3 ára, já tíminn líður sko hratt. Hún fékk alvöru
hjól í Afmælisgjöf frá okkur og er ekkert smá montin með það, er
alveg rosalega klár að hjóla líka! Svo fékk hún líka fullt af dóti
og bókum og þar á meðal var bók sem heitir "Ég vil líka eignast
systkin" ég veit ekki hvort fólk er farið að bíða eftir öðru
fullkomnu barni frá okkur en ég skal alveg láta ykkur vita af því
að það kemur hvort sem er fyrr eða síðar.
Svo er nú ekkert mikið planað framundan nema að Ingvar Már á
afmæli á morgun! jei hann verður 27 ár kallinn.usss jæja það
verður að hafa það ég get víst ekki breytt því!
Jæja þá er þetta orðið gott í bili
Kveðja Guðný